Flýtilyklar
Velkomin(n)
Nýjustu fréttir
Blússskólinn gekk vel
Blússkóli fór fram í tengslum við blúshátíðina í ár. Voru það blúsmenn Andreu sem sáu um skólann í ár og spiluðu svo þátttakendur á lokakvöldi blúshátíðar tvö lög. Stefnt verður að frekara námskeiðshaldi í framtíðinni.
Verkefnið var stutt af Menningarráði Eyþings og þakkar Jassklúbbur fyrir stuðninginn, án hans væri þetti ekki möguleiki.
12. blúshátíðinni lokið
Nú er 12. blúshátðinni í Ólafsfirði lokið og þakkar Jassklúbbur Ólafsfjarðra öllum þeim sem aðstoðuðu með einum eða öðrum hætti.
Næstu skref Jassklúbbs Ólafsfjarðar verður aðalfundur félagsins í haust þar sem farið verður yfir stöðuna og unnið markvisst að því að stækka klúbbinn. Farið verður yfir stöðuna og verkefni félgsins tekin til skoðunar, þá sérstaklega blúshátíðin.
Þeir sem hafa áhuga á að starfa með okkur er bent á að hafa samband við undirritaðan, Siglfirðingar sérstaklega velkomnir. Nánar auglýst í haiust.
Gísli Rúnar Gylfason
Formaður Jassklúbbs Ólafsfjarðar
gislirunar4@gmail.com
gsm: 863-4369
Myndasyrpa
Blúsmót í skotfimi
Laugardaginn 2. maí verður haldið blúsmót í skotfimi. Mótið er svokallað Tvöfalt sporting og skotnar verða 75 dúfur. Mótsgjald er kr. 1.000 + 500 kr. á hring.
Mótið er haldið á svæði skotfélags Ólafsfjarða við gangnamunann við Múlagöng og byrjar kl. 10:00.


